1. maí

VIÐ SKÖPUM VERÐMÆTIN

Stéttarfélögin á Suðurnesjum óska félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með baráttudag verkafólks þann 1. maí.

Á þessum degi fögnum við því sem unnið hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn.

Í tilefni af 50 ára afmæli kvennafrídagsins munu konur vera áberandi í dagskrá baráttufundarins.

Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll 1. maí kl. 14.00–16.00 og eru öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Dagskráin

  • Húsið opnar kl. 14 og tekur lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti fólki.
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK, setur dagskrá og kynnir.
  • Ræðumaður dagsins er Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í Vinnumarkaðsmálum ASÍ.
  • Fríða Dís tekur nokkur vel valin lög.
  • Leikfélag Keflavíkur kemur með innslag og Kvennakór Suðurnesja slær botn í dagskrána.
  • Guðmundur Hermannsson leikur ljúfa tóna fyrir gesti milli atriða.


FIT – Félag iðn- og tæknigreina •  RFS – Rafiðnaðarsamband Íslands • Starfsmannafélag Suðurnesja • VR •
VSFK – Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis • BSRB • ASÍ