Fræðslumál og styrkir

Félagsmenn í VSFK hafa aðgang að starfsmenntasjóðum sem samið hefur verið um í kjarasamningum. Markmið starfsmenntasjóðanna er að auðvelda félagsmönnum fjárhagslega að stunda sí- og endurmenntun. Í þessu sambandi er ekki eingöngu um að ræða hefðbundið nám heldur einnig ýmis styttri námskeið og í sumum tilvikum einnig tómstundanám.
 
Félagið sér um umsýslu fyrir sjóðina. Félagsmaður sækir um styrkinn til félagsins sem sér um að afgreiða hann.
 
VSFK á aðild að Starfsafli, í samstarfi við Eflingu, Hlíf og Samtök atvinnulífsins og eins á VSFK aðild að Sjómennt fyrir hönd sjómanna sem eru í félaginu.

  • Félagsmenn sem vinna á almenna markaðinum sækja sína styrki úr Starfsafli.
  • Félagsmenn sem vinna hjá sveitarfélögum, ríki, SFV og þeir sem fylgja kjarasamningum sveitarfélaga sækja sína styrki úr Bæjarsjóði .
  • Félagsmenn sem starfa sem sjómenn sækja sína styrki úr Sjómennt.